Visual RPG.net og Monarch frá ASNA
Forritun fyrir System i, Windows og vefinn
Ferli ehf. er umboðsaðili ASNA á Íslandi síðan 1999
Hvað er Visual RPG.net frá ASNA ?
Visual RPG.net frá ASNA er forritunarumhverfi sem kemur innvafið í Visual Studio 2005 og nýtist þar eins og hvert annað .net forritunarmál.
Hægt er að vinna samhliða í verkefnum í C#, VB eða VISUAL RPG.net og gerir forriturum kleift að nálgast gögnin á System i, Windows eða SQL-server á einstaklega einfaldan máta.
Viltu gera vefþjónustu á System i ? - kíktu á xml.ferli.is
Þarftu að koma gögnum frá System i yfir í önnur kerfi ?
Með Visual RPG.net er mjög einfalt að gera .net vefþjónustur sem tala beint við gögnin á System i (í gegnum DataGate) og skila niðurstöðum beint út í xml skjöl.
Hafðu endilega samband ef þú vilt skoða þetta nánar.
Við gefum þér lykilorð og þá getur þú prófað hvernig svona vefþjónusta keyrir.
Monarch
Yfirflutningur kerfa frá RPG á System i yfir í Visual RPG.net
Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera með Monarch frá ASNA, en með því er hægt að sækja "gömlu grænu" kerfin og setja yfir í Visual RPG.net kerfi. Öll forritin, skrár, skjámyndir, prentlistar eru tekin og færð yfir í Windows umhverfið og færist þá þróun hugbúnaðarins yfir í Visual Studio umhverfið og unnið þar með Visual RPG.net.
Núna er komin útgáfa Monarch sem einfaldar enn meira yfirfærsluna.
Góð þekking á Visual RPG.net og iSeries ásamt því að hafa allan forritakóda er nauðsynlegt til að hægt sé að gera yfirfærslu milli umhverfa
Hringdu í okkur til að fá sendan hugbúnað til prufu eða prófaðu að fara á heimasíðu ASNA og þaðan er hægt að hlaða niður öllum tólunum frá þeim.
Tengjast heimasíðu ASNA
|