Ferli logo

Fjöltengi

Gagnadreifing

Sjálfvirk dreifing innandyra

Þjóðskrárfjöltengið er alveg sérstök lausn frá Ferli til að dreifa þjóðskránni áfram innan fyrirtækis.

Eftir að þjóðskrárbreytingaskráin kemur inn til margra fyrirtækja þarf oft að dreifa henni í hin ýmsu kerfi og hefur verið heilmikill handleggur að halda utan um hvort öll kerfi hafi móttekið nýjustu breytingarnar.

Við hjá Ferli leysum þetta með litlu kerfi sem við köllum Þjóðskrárfjöltengi ! Með fjöltenginu er safnað upp í ákveðinn stofn öllum breytingaskrám og þeim er síðan dreift upp í allt að sex stofna innandyra.

Fjöltengi

Í kerfinu er svo sérstaklega hugsað til þess að gögn tapist aldrei og er auðvelt fyrir fyrirtæki að halda utan um skrána sem fer í Þjóðarsýn, í viðskiptamannakerfið, í Lotus Notes kerfið, í Navision kerfið, í dk bókhaldið o.s.frv.

Hægt er að velja um 128 stafa eða 300 stafa færslu og einnig er hægt að velja um stafatöflu fyrir Windows eða fyrir 850 (Navision). Einnig er alltaf hægt að kalla upp forritið og sækja heildarstofninn úr Þjóðarsýn eins og hann er hverju sinni.

Fjöltengi

Mörg fyrirtæki nýta sér þetta nú þegar og hefur þetta reynst frábærlega. Þjóðskrárfjöltengið keyrir á Windows og tekur gögnin úr Þjóðarsýn hvort sem er frá System i eða frá Windows netþjóni.

Fjöltengi