Ferli logo

Fréttir

Upphafsborði

Nýjustu fréttir

Maí:

Breyting á dreifingarskrá Utangarðsskrár þann 1. júní

Í ljós hefur komið að í dreifingu á Utangarðsskrá er samsláttur er á tveimur svæðum í dreifingarskránni.
Þessu verður breytt frá og með 1. júní, en þá verður svæðið í staðsetningum 85-115 fyrir "Sveitarfélag dvalarstaðar" og staðsetningar 170-200 verða fyrir "Röðunarsvæðið".

Minnum á færslulýsingar á síðunni hér.
Allar nánari upplýsingar fást hjá okkur í Ferli í síma 544-5888.

Febrúar:

Ferli kynnir eZee hótelkerfið

eZee FrontDesk NextGen er frábært kerfi fyrir hótel og gististaði.
Við erum að ljúka við þýðingar á eZee hótelkerfinu og brátt hefjumst við handa við að kynna kerfið af fullum krafti.
Kerfið er ótrúlega öflugt, inniheldur allar aðgerðir sem hótel og gististaðir þurfa og er allt einstaklega einfalt og þægilegt í notkun. Klárlega kerfi sem tekið verður eftir og verðin koma sérstaklega á óvart !
       eZee hótelkerfið
Bendum sérstaklega á sérstaka síðu um eZee-kerfið og nánari upplýsingar hér.

Janúar:

Uppfærslur á heildarstofnum þjóðskrár og fyrirtækjaskrár.

Nú eru fjöldamargir búnir að uppfæra stofnana sína og allt hefur gengið vel.
Við höfum verið að uppfæra stofnana hjá notendum Þjóðarsýnar og Íbúasýnar.
Að þessu sinni eru engar breytingar í færslulýsingum og því um að gera að keyra nýju stofnana inn við fyrsta tækifæri.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband.
Minnum á færslulýsingar og uppfærðar hliðarskrár hér.