|
Október 2005: Ferli
á umboðsmannafundi hjá ASNA.
Við hjá Ferli fórum til Guildford í Bretlandi, en þar eru
aðalstöðvar ASNA í Evrópu.
Þar hittust allir umboðsaðilar ASNA í Evrópu ásamt forstjórum frá
aðalskrifstofunni í Texas í Bandaríkjunum.
Mikið er framundan, nýjar útgáfur af forritunarmálinu Visual
RPG (4.1) og einnig af Visual RPG.net (7.2) ásamt nýrri útgáfu af
Monarch, en með því eru gömlu "grænu" RPG forritin,
skrárnar og prentlistar færð yfir sjálfkrafa í Visual RPG.net
forrit.
 |
Umboðsmannahópurinn hjá ASNA
stækkar ört á milli ára
Nú voru aðilar frá a.m.k. 11 löndum.
|
Sífellt fleiri sem nýta sér XML-þjóðskrár þjónustu Ferlis
Nú eru fjöldamörg fyrirtæki að nýta sér
XML-þjóðskrárþjónustu Ferlis, en hún virkar þannig að til okkar
er sent XML-skeyti með kennitölu og við svörum til baka með
upplýsingum úr þjóðskrá á viðkomandi kennitölu.
Með þessu móti er eingöngu greitt "örlítið"
mánaðargjald og svo entergjöld til Hagstofu.
Endilega hafðu samband ef þú vilt vita meira !
September 2005: Finnsk
heimsókn - Renet kennsluhugbúnaðurinn
Hofsstaðaskóli í Garðabæ fékk til sín góða gesti
þegar skólastjóri og kennarar frá Lathi í Finnlandi komu í
heimsókn ásamt fulltrúum tölvudeildar borgarinnar og fulltrúum frá
Renet, en það er einmitt Renet kennsluhugbúnaður sem er uppsettur í
tölvustofum skólanna.
Sett var upp viðbót við Renet kerfið til að nemendur í
Hofsstaðaskóla gætu talað við nemendur finnska skólans ásamt því
að sjá þá í videomynd á sama tíma. .
Finnski hópurinn heimsótti síðan aðra skóla í Garðabæ og
skoðaði m.a. Bláa lónið, Þingvelli, Gullfoss og Geysi.
Vefkynning 26. september kl. 13-14.
Minnum á vefkynninguna hjá Ferli, en þá mun Tom Huntington
frá Help/Systems kynna nýjustu útgáfuna á Robot/SPACE.
|
Nýjungar
og kynning á Robot/SPACE
Fjallað um ASP-Monitor, JOB Monitor, Collections Groups
CSI-Critical Storage Investigator, Storage Audits og Disk Storage
Reporting.
|
Ný Interform útgáfa
Allir notendur Interform hafa nú fengið sendan geisladisk
með nýjustu útgáfunni frá Intermate.
Við vonum að allir drífi sig í að setja upp nýju útgáfuna, því
í henni eru einnig uppfærslur fyrir "Graphical Designer".
Ferli ehf átti afmæli
þann 9. september.
Allt áfram streymir endalaust.... og Ferli ehf. er orðið 14 ára.
Við tökum alltaf við afmælisóskum á ferli@ferli.is
:-)
Júlí - ágúst 2005:
Mæðrastyrksnefnd fær
Þjóðarsýn
Mæðrastyrksnefnd fékk Þjóðarsýn um daginn. Bæði ASNA og
Ferli ehf. styrktu kaupin á gagnagrunninum og Ferli ehf. gaf
Þjóðarsýn kerfið.
Með bestu kveðjum frá Ferli og ASNA.
Apríl - Maí 2005:
Límmiðar beint út frá iSeries
með Interform hjá Kassagerðinni
 |
Við hjá Ferli höfum verið að gera
útprentun á límmiða fyrir Kassagerðina og er prentað beint
á sérstaka Zebra-límmiðaprentara frá Gagnastýringu.
Með Interform
útskriftarkerfinu er mjög öflugur stuðningur við Zebra límmiðaprentara og hægt að prenta lógó, strikamerki og
nánast hvað sem er á miðana..
Margar nýjungar eru komnar í nýju Interform
útgáfunni og má þar nefna öryggismál með
PDF-skjöl, sérstakt geymslukerfi og margt fleira.
|
Interform er öflugt kerfi !
Hjá Kassagerðinni er Interform að prenta nýtt útlit
á iSeries útskriftir út á venjulega
laserprentara, einnig út í PDF-skjöl og nú einnig á
límmiða.
|
Kíktu nánar á Interform
|
Brimborg með nýjan vef fyrir notaða bíla.
Brimborg breytti öllu vefsvæði sínu nýlega og var þá
ákveðið að í hluta notaðra bila myndi Ferli tengja nýjan vef
við gögnin sem eru á iSeries.
Vefurinn var hannaður af Naturalis, en við hjá Ferli sáum um að
tengja hann við gögn Brimborgar.
Veflausnin, sem er unnin í Strategi frá BusinessLink,
hefur fengið miklar og góðar viðtökur og hafa verið um og yfir 1000
heimsóknir á dag á hann.
Ferli hefur nú umsjón með kerfi notaðra bíla og höfum við skellt
nafninu Bílasýn á kerfið.
|
 |
Vefurinn er þannig gerður að sölumenn Brimborgar
geta m.a. sjálfir stillt hvaða tilboðsbílar birtast á
forsíðu vefsins.
Á vefnum er hægt að leita eftir draumabílnum á margvíslegan
hátt og best er að skoða sjálfur með því að smella á
myndina hér til vinstri.
|
Þjóðarsýn á vefnum - tilbúin og farin að keyra hjá
Mjólkursamsölunni.
Mjólkursamsalan reið á vaðið og er byrjuð að nota Þjóðarsýn
veflausn innandyra hjá sér
Allir starfsmenn fyrirtækisins geta flett í Þjóðarsýn á netinu og
er mikil ánægja með kerfið innandyra hjá MS.
|

|
Þjóðarsýn á vefnum er unnin í Strategi og geta
þeir sem vilja prófa aðgang að henni haft samband við okkur
í síma 544-5888.
Báðar þessar veflausnir eru gerðar í Strategi eins og áður
sagði.
Allar nánari upplýsingar um Strategi veflausnir frá
BusinessLink
eða veflausnir með Visual RPG.NET fá ASNA
veitir Ferli ehf.
|
Mars 2005:
Ferli var með bás á
UT-sýningunni 4. mars.
UT-ráðstefnan 2005
sem er sérstök tölvu- og tækniráðstefna fyrir skóla var haldin
að þessu sinni á Hóteli Sögu.

Guðrún Björk og Björn kynntu Renet-kennslukerfið fyrir
ráðstefnugestum.
Miklar nýjungar eru frá Renet og fer t.d.að koma sérstök útgáfa frá Renet sem er sérstaklega gerð
fyrir fjarkennslu yfir internetið.
Mýrdalshreppur er að bætast í hóp
notenda Íbúasýnar.
Nú á næstunni klárast uppsetning Íbúasýnar hjá
Mýrdalshreppi og eru þau boðin hjartanlega velkomin í hóp notenda.
Fleiri sveitarfélög eru að skoða einnig þessa dagana.
Ferli ehf. er búið að panta nýja IBM
iSeries i5 vél.
Mun hún leysa af hólmi gömlu AS/400 vélina.
Við bíðum spennt hér hjá því nýja vélin er víst fimm
sinnum hraðvirkari.
Janúar/Febrúar 2005:
Uppfærsla á þjóðskrárstofni að ljúka hjá öllum
Nú er búið að uppfæra þjóðskrárstofna hjá all flestum
viðskiptavinum okkar og hefur þetta gengið frábærlega vel.
Íbúasýn útgáfa 3 er í vinnslu !
Ertu með hugmynd um breytingu ?
Settu upp smá skeyti og sendu okkur hugmynd að breytingu, það er
aldrei að vita nema hún kæmist alla leið inn í næstu útgáfu af
Íbúasýn !
|