|
|

|
Fréttir frá 2006.
Desember
2006:
Nýtt þjóðskrárár að hefjast -
Allar heildarskrár tilbúnar til dreifingar.
Nú eru komnir til okkar nýir stofnar fyrir þjóðskrá og
fyrirtækjaskrá og hægt að sækja þá við fyrsta tækifæri.
Eins og venjulega gerir
skrifstofa Þjóðskrár nýjan heildarstofn þjóðskrár sem er miðaður við 1.
desember.
Okkur hefur nú borist skráin ásamt
nýrri heildarskrá fyrirtækja frá RSK og eru allir heildarstofnar
tilbúnir til dreifingar og hægt að nálgast þá. |
 |
Eins og allir vita, þá þarf EKKI
að endurnýja samningana við Hagstofu vegna þjóðskrár eða við RSK vegna
fyrirtækjaskrár, heldur gilda þeir áfram milli ára. Það þýðir að allir
sem ætla að halda áfram að sækja skrárnar geta sótt heildarstofnana nú
þegar og svo munu Hagstofan og RSK senda út reikninga á næstunni (ef það
er ekki þegar búið).
Ferli ehf. varð 15 ára í september á
þessu ári og sem fyrr kappkostum við að veita viðskiptavinum okkar sem
allra bestu þjónustu.
Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna að í tilefni afmælisins
munu engar verðbreytingar verða á áskriftarverðum okkar fyrir árið 2007.
Utangarðsskrá: Bendum sérstaklega á
að okkur berast margar fyrirspurnir um kennitölur erlendra aðila sem
vinna hérlendis, en þær kennitölur fara ekki í þjóðskrá, heldur eru í
sérstakri skrá – svokallaðri Utangarðsskrá.
Til að fá aðgang að henni verður að breyta samningi við skrifstofu
Þjóðskrár og þá er hægt að fá hana til sín einnig og nú er rétti tíminn
til að gera breytingar.
Tvær leiðir við heildaruppfærsluna:
Hægt að sækja heildarskrá + breytingaskrár síðan 1.des eða sækja beint
stöðuskrána.
Um er að ræða tvær leiðir við
uppfærslu heildarstofnsins.
Hægt er að taka heildarskrána sjálfa sem er m.v. 1.des. og eftir það
þarf að sækja breytingaskrár ef komnar eru (fyrir daglega og vikulega
uppfærslu, en eftir áramótin fyrir mánaðarlegu uppfærslu).
Hins vegar er líka hægt að sækja uppfærðan heildarstofn með ákomnum
breytingum og hana köllum við stöðuskrá.
Dæmi
(athugið að í ykkar tilfelli geta síðustu 3 stafirnir í nafninu á
skránni verið aðrir, en sama regla á við !):
Ef fyrirtæki tekur skrá sem heitir DAG300E32, þá er um tvennt
að velja við áramótauppfærslu:
- Taka skrána HEI300E32 sem er staðan frá 1.12.
- Taka því næst
BRE300E32 sem í eru allar breytingar frá 1.12.
EÐA:
- Taka skrána STA300E32 en í henni er heildarstaðan á hverjum
degi fyrir sig með
Ef
sótt er með FTP:
Þeir sem sækja skrá sem
t.d. heitir DAG300E30 geta þá sótt skrá sem heitir HEI300E30
og BRE300E30 eða STA300E30.
Reglan er þá að þeir sem sækja skrár sem byrja á MAN*, VIK* eða DAG*
geta þá sótt samsvarandi skrá sem byrja á stöfunum HEI*, BRE* eða
STA*. (Einfaldast er kannski að segja að HEI* + BRE* = STA*. )
Best er að skoða FTP-skriftuna sem þið notið til að sjá þetta nánar eða
hafa samband við okkur í Ferli.
Ef sótt er með
RSF frá iSeries eða System i (AS/400):
Ef Þjóðarsýn er á vélinni er hægt
að fara í skipunina NAFNV og þar í lið númer 5 og fæst þá upp valmynd
fyrir áramótakeyrslur. Hægt er að keyra þar liði 1 og 2 og síðan 3, 4
eða 5 eftir því hvaða leið á að fara.
Ef Þjóðarsýn er ekki á
vélinni, er hægt að fara í RSF kerfið og skoða Catalog skrána fyrir
Ferli, þá sést að hægt er að sækja skrá sem byrjar á HEI*, STA* eða
BRE* og inniheldur hún viðkomandi heildarstofn.
Við aðstoðum einnig iSeries notendur ef þess er óskað og uppfærum RSF og
DataGate ásamt því að uppfæra þjóðskrárkerfið Þjóðarsýn.
Til notenda Íbúasýnar
Nú er að verða tilbúin
útgáfa 3.0 af Íbúasýn og vonum við að hægt verði samhliða
áramótauppfærslu þjóðskrár að setja inn nýja útgáfu af Íbúasýn í
leiðinni. Endilega verið í sambandi við okkur áður en farið er í
uppfærsluna.
Ef einhverjar spurningar eru, þá ekki hika við að hafa samband við
okkur.
|
|
|
|
ASNA Visual RPG.net námskeið var 4.-6. desember.
Við vorum svo heppin á fá Rick Farina til landsins og kenndi
hann okkur ASNA Visual RPG.net dagana 4. - 6. desember.
Rick er einn af þeim allra bestu í faginu og frábær kennari að
auki.. Hann ferðast um öll Bandaríkin til að kenna og ráðgefa
fyrir ASNA og vorum við svo heppin að fá hann til að koma til
landsins.
Rick kenndi okkur hvernig á að gera veflausnir og Windowsforrit í
Visual Studio 2005 með Visual RPG.net, ásamt því að nálgast
gögn á iSeries eða SQL-server með DataGate.
Mikill áhugi var á því sem hægt var að gera með AVR.net og var farið
í vefsíðugerð þar sem talað var við gögnin frá iSeries. Einnig voru
gerðar vefþjónustur og sýndi Rick hvernig nýta átti vefþjónustur
annarra í AVR.net. Allt þetta var svo spennandi að enginn vildi fara
þegar tíminn var búinn og Rick hélt þá bara áfram í einn og hálfan
tíma í viðbót og sýndi fleiri möguleika.
Engin spurning að þetta kveikti verulega í öllum forriturunum |

Rick að herma eftir vefnum |
|
Klúbbfundur
i-klúbbsins 5. desember.
Á þriðjudeginum þann 5. desember komu um 30 aðilar á klúbbfund
i-klúbbsins hjá Ferli, en þar voru kynntar ýmsar nýjungar ásamt því
að Rick Farina hélt frábæra kynningu og sýndi hvað hægt er að gera með Visual RPG.net, DataGate
og Monarch frá ASNA.
Við hjá Ferli notuðum tækifærið og héldum upp á 15 ára afmælið með afmælistertum
og léttum veitingum.
Í lok fundarins var haldinn aðalfundur i-klúbbsins þar sem ný stjórn
var klöppuð inn í embætti. |

Um 30 gestir komu á fundinn |
| |
|
|

Monarch, AVR.net og mikill áhugi ! |
 |
| |
|
|
THANK YOU RICK !
|

|
Nóvember 2006:
Nýtt frá
Intermate - InterExcel400

Viltu flytja venjulega prentlista beint í nýtt útlit í Excel ?
Þessi mynd segir meira en þúsund orð.

Með InterExcel400 er hægt að taka alla prentlista frá System i og færa yfir í
Excel form.
Kerfið er alveg frábært og alveg þess virði að
kíkja nánar
hér.
Október 2006:
Forritaðar lausnir fyrir Strategi
og Interform og Visual RPG.
Núna í október höfum við verið á kafi
í forritun !
Búið er að gera lausnir sem tengja saman Interform, Strategi ásamt
tölvupóstsendingum beint frá iSeries-vélinni.
Strategi-veflausn er að fara í loftið og verður tilkynnt um hana síðar.
Verksýn verður sífellt umsvifameiri hjá Orkuveitunni.
Verksýn er í fullum gangi hjá Orkuveitunni og er sífellt að verða
umsvifameiri þar.
Verksýn er nú farin að tala við fjöldamarga gagnagrunna, auðvitað
iSeries og einnig Oracle svo dæmi séu tekin.
Allt í Verksýn er forrtiað í Visual RPG.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Ferli.
|
|
|
|
September 2006:
Ferli ehf. varð 15 ára þann 9.
september.
|
Sendum bestu afmæliskveðjur
til viðskiptavina okkar !
Nú þann 9. september varð
Ferli ehf. 15 ára !
Síðan við stofnuðum fyrirtækið 9. september 1991 hefur
okkur vaxið fiskur um hrygg og á hverju einasta ári frá stofnun
fyrirtækisins hefur velta og umfang og fjöldi viðskiptavina aukist.
Umboð fyrir frábærar lausnir!
Nánast frá upphafi hefur Ferli ehf. verið umboðsaðili fyrir frábærar
lausnir fyrir IBM iSeries vélar og má þar nefna lausnir frá
fyrirtækjum eins og ASNA, Advanced BusinessLink, Help/Systems og
SOSY, Intermate, BugBusters, Maximum Availability og fleirum.
Við erum miðlarar fyrir þjóðskrá, fyrirtækjaskrá, horfinnaskrá og
utangarðsskrá.
Ferli ehf hefur dreift skrám frá Hagstofu og RSK síðustu 14 árin
og höfum við kappkostað að veita þá allra bestu þjónustu sem
mögulegt er.
Nýja IBM i5 vélin okkar er þar í aðalhlutverki varðandi
dreifinguna sjálfa og er afskaplega snögg með öll verk.
Nýjungarnar í dreifingunni sem kynntar voru í byrjun ársins hafa
heldur betur slegið í gegn.
Búið að þróa marga pakka !
Hver hefur ekki heyrt um Þjóðarsýn, Verksýn, Íbúasýn eða
Þjóðskrárfjöltengið ???
Kerfin frá okkur í Ferli eru í notkun hjá fjölda fyrirtækja og má
t.d. nefna að Íbúasýn er í notkun hjá 20 sveitarfélögum.
Windowskerfin frá okkur keyra á móti DataGate fyrir iSeries eða
fyrir Windows server eða í SQL-server.
Ef þú þekkir ekki lausnirnar okkar - láttu þá í þér heyra og við
fræðum þig !
Við hjá Ferli ehf. þökkum viðskiptavinum okkar
samstarfið síðustu 15 árin
og erum full tilhlökkunar fyrir næstu 15 !
Bestu kveðjur, Björn, Valdimar og Guðrún Björk.
|
Verðbréfaskráning tekur Robot í sína
þjónustu
Verðbréfaskráning Íslands hefur tekið í notkun
Robot/SCHEDULE hugbúnað frá Help/Systems og bráðum verða gangsett kerfin
Robot/CONSOLE, Robot/ALERT og Robot/SAVE.
Öll kerfin mynda ákveðna heild og eykst sjálfvirkni til muna í
rekstri vélarinnar hjá VBSÍ .
Sjá nánar um Robot-kerfin hér.
Nýja útgáfa Íbúasýnar í vinnslu.
Íbúasýn er sífellt í þróun og nýjasta útgáfa hverju sinni
alltaf til á Download-síðunni.
Nú er hins vegar að koma mynd á fullnaðarútgáfu af Íbúasýn
3.0.
Nokkrar góðar viðbætur eru þegar komnar í nýju útgáfuna og vonumst við
til að fullklára verkið á næstunni.
Maí
2006:
SOSY í heimsókn og haldnar
Robot-kynningar

Klúbbfundur í leiðinni.
Eftir kynninguna var haldinn klúbbfundur og farið nánar í
Robot-málin.
Helle Mering sagði okkur frá
kostum Robot-kerfanna og sýndi nýjustu útgáfuna af Robot/SPACE.
Að
auki voru kynnt kerfin GiAPA og
TurnOver, en
þessi kerfi nýtast tölvudeildum sérstaklega vel við hugbúnaðarvinnu á
iSeries og i5 vélum.
|
Heimsókn frá Danmörku.
Hingað kom allt starfsfólkið frá
SOSY í sérstaka vinnuferð og var fundað með okkur í Ferli
ásamt því að skoða Ísland í leiðinni.
Haldin var kynning
var fyrir notendur Robot-hugbúnaðar sem og
aðra áhugasama. Margar nýjungar voru kynntar í Robot/SCHEDULE, Robot/REPLAY, Robot/CONSOLE,
Robot/ALERT, Robot/SPACE og sýnt hvernig þessi kerfi tvinnast saman í
eina heild.
Frá SOSY kynntu Helle Mering forstjóri SOSY og Niels Fröding,
sérfræðingur í Robot-hugbúnaði.

Starfsfólk frá SOSY í heimsókn hjá Ferli ehf.Við
þökkum þeim sem komu á kynningarnar hjá okkur bjóðum öllum Robot-notendum sem og öðrum
áhugasömum að kíkja til okkar í Hlíðasmára 8 og sjá öll kerfin keyra á
vél Ferlis. |
Renet-kynning fyrir
kennara Hofsstaðaskóla
|

Björn og Guðrún frá Ferli
að kynna Renet |
Allir kennarar í Hofsstaðaskóla á kynningu.
Renet kennslukerfið var kynnt nánar í Hofsstaðaskóla fyrir öllum
kennurum skólans.
Farið var yfir allar nýjungar og prófað fram og til baka. Sýnt var
hvernig hægt er að stýra kennslustofunni með kerfinu og hvernig
kennarinn fær algjört vald yfir tölvum stofunnar. Það þýðir að
nemendur geta eingöngu gert það sem kennarinn segir þeim að gera.
Önnur kynning var svo haldin kynning fyrir fulltrúa hinna skólanna í
Garðabæ og kokmu fulltrúar frá Garðaskóla, Flataskóla og
Sjálandsskóla.
Við þökkum fyrir okkur og nú bíðum við spennt eftir að sjá hvort
notendum Renet fjölgi í Garðabænum !
|
Mars og apríl
2006:
Fjarðabyggð og Grundarfjarðarbær
bætast í hóp notenda Íbúasýnar.
Nú er búið að setja inn Íbúasýn
hjá Fjarðabyggð og hjá Grundarfjarðarbæ og sífellt fjölgar
sveitarfélögunum sem nota kerfin.
Smith og Norland bætast í hóp
notenda Interform útskriftarkerfisins.
Interform er komið upp hjá Smith
og Norland og með kerfinu munu margir útskriftarlistar fá nýtt útlit.
Við bjóðum þessi fyrirtæki velkomin í hópinn !
Febrúar
2006:
Flestir búnir að
sækja uppfærslur á þjóðskrá og fyrirtækjaskrá.
Við hvetjum hina sem eftir eiga
að uppfæra að vera í sambandi við okkur og nálgast heildarskrárnar.
Minnum á nýjungarnar í dreifingunni. - Sjá janúarfrétt hér neðar.
Kynning var á nýjungum í Robot
hugbúnaði frá SOSY og Help/Systems
Fimmtudaginn 9. febrúar var
sérstök kynning Robot/UPDATE frá SOSY og Help/Systems á
nýjungum fyrir Robot hugbúnað.
Sérstaklega er fjallað um Robot/SCHEDULE og önnur kerfi úr
Robot-fjölskyldunni.
Tom Huntington sem er hjá Help/Systems í Minneapolis í
Bandaríkjunum og Helle Mering sem er hjá SOSY í Danmörku stýrðu
kynningunni og ásamt þeim tóku þátt fjöldamargir notendur og
umboðsaðilar í nokkrum löndum.
Janúar 2006:
Breyting á IP-tölu aðalvélar
Ferlis fimmtudaginn 26. janúar.
Allir sem sækja þjóðskrá, fyrirtækjaskrá o.fl. þurfa að breyta.
vegna breytinga hjá okkar Internet-tengiaðila, þá þarf að breyta IP-tölunni á vélinni sem sér um dreifinguna á þjóðskrá, fyrirtækjaskrá og tengdum skrám hjá okkur í Ferli.
Gamla IP-talan var 212.30.219.47.
Nýja IP-talan verður 82.221.24.30 og á hún að geta gefið okkur öflugri tengimöguleika ásamt möguleikum á
öðrum tengileiðum ef einhver Internet-tengiaðili verður sambandslaus.
Þ.e. þessi nýja tala er "rútanleg" í gegnum svokallaðan RIX en hann m.a. hengir saman internet tengingaraðila.
Ef teknar eru skrár frá okkur með FTP:
Ef þið notið skriftur frá okkur, þá þarf að breyta þeim og setja inn nýju IP-töluna í OPEN skipuninni.
gamla línan: open 212.30.219.47 verður: open 82.221.24.30
Ef þið eruð að nota hugbúnað frá Ferli, þá eru skrifturnar oftast geymt undir C:\Program files\Ferli\Tjodarsyn keyrslur á viðkomandi vél.
Einfaldast er að sjá þetta í Scheduler en þar er verið að keyra bat-skrá sem er í sömu möppu og ftp-skriftan.
Ef teknar eru skrár frá okkur með RSF á iSeries.
Fara í GO RSF/RSF og þar í lið númer 1.
Setja 2 fyrir framan Ferli og breyta þar yfir í nýju IP-töluna.
Endilega hringið ef eitthvað vantar nánar. Síminn er
544-5888.
Nýtt þjóðskrárár er hafið,
allir sem fá þjóðskrá og fyrirtækjaskrá þurfa nýja heildarstofna.
Nú erum við að dreifa nýjum heildarstofni
þjóðskrár, fyrirtækjaskrár ásamt horfinnaskrá, utangarðsskrá
einstaklinga og utangarðsskrá fyrirtækja.
Mjög margir hafa nú þegar sótt stofana sína og hvetjum við hina til
að kíkja á málið sem fyrst.
Endilega hafið samband ef við hjá Ferli getum
aðstoðað ykkur við uppfærsluna.
Ýmsar leiðir
varðandi skrárnar.
Allt er til reiðu og hægt er að sækja stofnana strax í dag með FTP eða RSF (fyrir iSeries/i5).
Auðvitað er einnig hægt að fá sendan geisladisk með heildarstofninum og biðjum við ykkur þá að hringja eða senda tölvupóst til að panta hann.
Fyrir utan allar reglulegar skrár sem hægt er að sækja, þá eru
ýmsar NÝJUNGAR í dreifingunni frá Ferli fyrir uppfærslu heildarstofnanna:
Nú bjóðum við upp á að sækja eftirfarandi skrár fyrir þá sem eru að taka uppfærslur frá okkur:
-
Hægt er að sækja heildarstofnana frá 1.12. sérstaklega.
Þessar skrár byrja allar á nafninu HEI*
-
Hægt er að taka uppsafnaðar breytingar frá 1.12. í einni skrá.
Þessar skrár byrja allar á nafninu BRE*
-
Hægt er að taka sérstaka stöðuskrá sem er í
raun ný heildarskrá á hverjum degi.
Þessar skrár byrja allar á nafninu STA*
Dæmi:
Ef fyrirtæki tekur skrá sem heitir DAG300E32, þá er um tvennt að velja við áramótauppfærslu:
Taka skrána HEI300E32 sem er staðan frá 1.12.
Taka því næst BRE300E32 sem í eru allar breytingar frá 1.12.
EÐA:
Taka skrána STA300E32 en í henni er heildarstaðan á hverjum degi fyrir sig með
Alltaf hægt að sækja stöðuskrá eða uppsöfnuðu breytingaskrána:
Eftir að þið hafið sótt heildarskrárnar skv. ofangreindu, þá verður áfram hægt að sækjar stöðuskrár eða uppsöfnuðu breytingaskrána hvenær sem er, en þá munum við innheimta fyrir hvert skipti sem þær tvær skrár eru sóttar frá okkur og sjáum við það úr log-skránum hvenær þær eru sóttar hverju sinni.
Ef sótt er með FTP:
Þeir sem sækja t.d. skrá sem heitir DAG300E30 geta sem sagt sótt skrá sem heitir HEI300E30 og BRE300E30 eða STA300E30.
Reglan er þá að þeir sem sækja skrár sem byrja á MAN*, VIK* eða DAG* geta þá sótt samsvarandi skrá sem heitir HEI*, BRE* eða STA*.
Best er að skoða FTP-skriftuna sem þið notið til að sjá þetta nánar.
Breytingar í
fyrirtækjaskrá - Færslubreyting
Þau fyrirtæki sem sækja fyrirtækjafærslur, athugið sérstaklega að nú er breyting á færslulýsingu.
Nýtt tveggja stafa svæði kemur inn í staðsetningu 171-172 sem er tveggja stafa rekstarformkódi fyrirtækis.
Fyrirtækjafærsla 300 stafir - breytt útlit.
1 2 Einkenni FF
3 10 Ónotað
11 20 Kennitala
21 24 Sveitarfélag
25 27 Póstnúmer
28 28 Gamla rekstarform
29 32 Sveitarfélag starfsstaðar
33 63 Röðunarsvæði nafns
64 94 Nafn
95 125 Autt
126 146 Heimili
147 156 Kennitala stjórnarformanns
157 161 Pósthólf
162 164 Póstnúmer pósthólfs
165 170 Dagsetning síðustu breytingar
171 172 Nýtt tveggja stafa rekstarform **NÝTT
173 175 Autt
176 180 VSK-númer
181 184 Sveitarfélag lögheimilis
185 192 Nýskráning
193 208 Starfsemi
209 216 Autt
217 226 Kennitala viðtakanda/berist til
227 257 Nafn - berist til
258 260 Autt
261 265 ISAT-kódi
266 273 Autt
274 274 E=Af skrá
275 278 Afdrif
279 286 Dagsetning afdrifa
287 291 Autt
292 292 Bannkódi
293 300 Autt
Nýja rekstarformið hefur eftirfarandi gildi:
Rekstarform Skýring
A1 Einstaklingur í atvinnurekstri
A2 Dánarbú einstaklings
A3 Þrotabú einstaklings
A4 Þrotabú fyrirtækja - BARA FYRIR VSK
AX Einstaklingsfyrirtæki með kennitölu (skráð fyrir 1
B1 Sameignarfélag almennt (sf)
B2 Sameignarfélag opinberir aðilar
BX Önnur sameignarfélög (óskilgreind)
C1 Samlagsfélag, almennt (slf)
C2 Byggðasamlag (bs)
CX Önnur samlagsfélög (óskilgreind)
D1 Hlutafélag, almennt (hf)
D2 Hlutafélag - Alþjóðlegt viðskiptafélag (hf a.v.)
D3 Evrópufélag SE/hf
DX Útibú/deild hlutafélags
E1 Einkahlutafélag (ehf)
E2 Einkahlutafélag (ehf) - Alþjóðlegt viðskiptafélag
EX Útibú/deild einkahlutafélags
F1 Samlagshlutafélag
G1 Samvinnufélag (svf)
G2 Húsnæðissamvinnufélag
H1 Sjálfseignarstofnun sem stundar atvinnurekstur (se
H2 Sjálfseignarstofnun með staðfesta skipulagsskr. í
HX Aðrar sjálfseignarstofnanir - útibú/deild
K1 Ríkisstofnun
K2 Stofnun sveitarfélags
K3 Fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélags
K4 Opinber aðili
K5 Stofnun/fyrirtæki í eigu erlends ríkis
KX Útibú ríkisstofnunar/sveitarfélags
L1 Sparisjóður
LX Útibú sparisjóðs
M1 Lífeyrissjóður
N1 Félagasamtök
N2 Áhugamannafélag
NX Önnur félagasamtök/áhugamannafélög
P1 Húsfélag
P2 Félagsbú
P3 Veiðifélag
R1 Útibú erlends félags
R2 Erlent félag með tímabundna starfsemi á Íslandi
RX Önnur erlend félög
Z1 Erlent félag/fyrirtæki, v/bankaviðskipta
Z2 Sjóður/deild innan fjármálafyrirtækis
ZX Önnur félög utan aðalskrár
|