Fréttir frá 2007

Nóvember 2007: xml.ferli.is  .net-vefur Ferlis kominn í loftið

Viltu uppfæra kerfin þín,  viltu nútímavæða og breyta útliti, viltu breyta kerfunum í veflausnir ??
Nú erum við komin með vefþjónustu í gang þar sem hægt er að prófa þetta allt saman.
Kíktu á http://xml.ferli.is  og hafðu samband ef þú vilt vita meira.
Við gefum þér lykilorð og þá getur þú prófað hvernig svona vefþjónusta keyrir.

Við hjá Ferli höfum verið að skrifa vefþjónustur og þetta er ótrúlega auðvelt gagnvart IBM System i og útkoman er .net vefþjónusta sem allir geta skrifað á móti og nýtt sér.
 


   

Október 2007: Ibúasýn  nú hjá hátt á þriðja tug sveitarfélaga.
Sandgerðisbær kominn í hópinn.
 
   
Við bjóðum starfsfólk á skrifstofu Sandgerðisbæjar velkomið í hóp notenda Íbúasýnar.
Með Íbúasýn er ótrúlega einfalt að lista út og vinna með allar upplýsingar sem snúa að búsetumálum.
Sjá nánar hér

Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna í byrjun nóvember.
Sem fyrr verðum við með sýningarbás þar !
Hvetjum alla til að kíkja í básinn okkar og skoða nýjungar í Íbúasýn, Þjóðarsýn og í Renet skólakerfinu.


 

Október 2007: Robot/SECURITY  nýtt kerfi fyrir öryggið !
Vistaðu niður klukkutíma kynningu og sjáðu sjálf(ur) !
 
Með kerfinu fylgist þú með öllu sem snýr að öryggismálum og tengingum við vélina.  Robot/Security skoðar allt sem gerist í gegnum "Exit Point", fylgist með breytingum notendaskilgreininga og vaktar "security audit journal (QAUDJRN)".
Hver er að nota FTP og ODBC tengingar - viltu ekki vita það ? 
Minnum einnig á öll hin kerfin, en í Robot-fjölskyldunni eru nú hátt í 20 kerfi sem hvert um sig sinnir ákveðnu hlutverki. 

Viltu skoða vefkynningu sem sýnir alla helstu kosti Robot/SECURITY ?
Smelltu þá hér, vistaðu á þína vél og keyrðu þegar þér hentar !

Sjáðu blaðagrein sem skrifuð er um Robot/SECURITY

Sjá nánar um öll Robot-kerfin hér
 


September 2007: RSF útgáfa 8.1 frá BugBusters komin !
Allt hægt að spegla á milli System i véla !
 
Með nýju útgáfu 8.1 af RSF er hægt að spegla eftirfarandi týpur á milli véla:
 User profiles System values Network attributes
Authorization lists Data queues Object-level authorities
Spooled files Message queues  Data areas
Database files  IFS objects  

Í nýju útgáfunni kemur RSF enn á óvart og gerir allt það sem "stóru" speglunarkerfin geta nema bara  margfalt ódýrari í  verði  ! 
Svo er ótrúlega snjallt að nota RSF þegar flutt eru gögn á milli véla eins og við höfum gert síðustu 16 árin.
Sjá nánar um RSF 8.1 hér  og enn nánar hér hjá Bugbusters.


September 2007: Ferli ehf. varð 16 ára þann 9. september :-) 
 Já enn flýgur tíminn og enn eitt árið skellur á okkur og í reynslubanka Ferlis.
Þetta sextánda ár hefur verið mjög viðburðarríkt og auðvitað er margt framundan !
Þökkum okkar viðskiptavinum fyrir og óskum okkur öllum til hamingju með áfangann !
 


Ágúst 2007: Vefþjónustur fyrir IBM System i.

Með Visual RPG.net er mjög auðvelt að gera veflausnir, Windows-forrit eða vefþjónustur sem tala beint við IBM System i, Windows netþjóna eða SQL netþjóna.
Við höfum nýlokið við viðamikið vefþjónustukerfi sem talar beint við System i (iSeries/AS400) og skilar svörum beint út í "dataset". Endilega hafðu samband og við kynnum það fyrir þér !
Sjá nánar um Visual RPG.net hér
 


Júlí  2007: Interform notendur fleiri og fleiri.
Interform kemur víða við sögu og sér um að búa til nýtt útlit á prentlista og pdf skjöl.
Nú eru mörg fyrirtæki sem taka prentlistana sína og breyta beint í glæsileg pdf-skjöl í litum og láta System i vélina svo senda beint sem viðhengi  í tölvupósti á viðskiptavinina.
Ný fyrirtæki bætast sífellt í hópinn og láta Interform sjá um að breyta útlitinu á prentlistunum sínum.
                    
Viltu vita meira um þetta ?  Kíktu þá hér
 

Maí 2007: RSF-kerfið farið að spegla gögn á milli System i véla hjá TM !
Við hjá Ferli óskum Tryggingamiðstöðinni innilega til hamingju, en þeir eru fyrsti RSF-notandinn sem notar kerfið til að spegla á milli véla.  Tryggingamiðstöðin þurfti smá breytingar á kerfinu og voru þeir eldsnöggir hjá Bugbusters að skella inn þeirri breytingu. Nú keyrir kerfið og speglar öll gögn úr gagnasöfnum.
Í nóvember er væntanleg útgáfa 8.1 og þá verður hægt að spegla "DataArea", notendaskilgreiningar og einnig sérstaklega "dataqueue".
Við bíðum spennt þar til í nóvember því þá verður RSF fullvaxta speglunarkerfi á ótrúlega lágu verði.

Apríl 2007: Renet kennslukerfið fyrir tölvustofur.

Viltu stýra tölvunum í kennslustofunni á einfaldan hátt ?
Viltu nýta tölvurnar betur og koma rafrænu kennsluefni til nemenda á fjölbreytilegan hátt?
Þú verður að skoða Renet-kennslukerfið.
Sjá nánar hér
 
Febrúar og mars 2007:
Við vorum á Tækni og vit 2007
Tölvusýningunni sem var 8. - 11. mars.
 


Við í Ferli vorum með á tölvusýningunni Tækni og vit sem var í Fífunni dagana 8.-11.
Um var að ræða eina stærstu tölvusýningu sem haldin hefur verið á landinu og  að sjálfsögðu vorum við þar.
Við kynntum allar okkar lausnir eins og Þjóðarsýn, Íbúasýn og Verksýn og fleiri. Sjá kynningarblað hér.
Einnig allar lausnir sem við höfum fyrir IBM System i vélar, en það eru tól eins og Visual RPG.net og Monarch frá ASNAStrategi frá Advanced BusinessLink, Interform frá Intermate, Robot-hugbúnaðurinn frá SOSY og Help/Systems og svo RSF frá Bugbusters.

Sérstök áhersla var á Renet-kennsluhugbúnaðinn og margir skólar sýndu því mikinn áhuga !
 


 

 

Strategi nýjungar:
Advanced BusinessLink kemur sífellt á óvart með nýjungum í Strategi internetkerfinu fyrir System i vélar.


Kíktu á þessa síðu hér   eða taktu niður þessar kynningar sem eru í  pdf-kynningarskjölum: 
Strategi SOA , Strategi ACCESS  ,  Strategi mobile ACCESSPocket Strategi

Nú er í prófun sérstakur Strategi vefur hjá Sláturfélagi Suðurlands, en þar gefst notendum möguleiki á að fara inn á heimasíðu og fá yfirlit eða afrit reikninga beint á skjáinn eða í tölvupóst.  Sagt nánar frá þessu síðar.
 

 
Janúar 2007:
Ný útgáfa tilbúin af Íbúasýn og Þjóðarsýn.

Nú erum við að senda út til sveitarfélaga útgáfu 3.0 af Íbúasýn.
Margar nýjungar eru í útgáfunni eins og t.d. viðbætur við útlistun, fleiri svæði í listum ásamt miklum breytingum á meðferð hreyfingaskrár.  Einnig meiri röðunarmöguleikar ásamt því að skrifa fleiri lista beint í Excel.
Nú þegar erum við búin að uppfæra hjá nokkrum sveitarfélögum og höfum við fengið góð viðbrögð við nýju útgáfunni.
Sjá nánar um Íbúasýn hér
 


RSF 8.0 frá BugBusters, viltu spegla iSeries ?
Nú er hægt að senda gögn, forrit og lista ásamt því að spegla í báðar áttir.

Nú er komin útgáfa 8.0 af RSF (Remote Software Facility)  frá BugBusters en það forrit er notað nánast á öllum iSeries vélum sem þurfa að senda gögn, forrit og prentlista á milli véla.
Í nýju útgáfunni er kominn sérstakur liður sem leyfir að afrita alla vélina yfir á aðra og er sérstaklega þægilegt þegar verið er að uppfæra vélar.
Sérstakur viðbótarmöguleiki er nú að hægt er að spegla iSeries vél yfir á aðra og jafn vel fram og til baka.
Sjá nánar um RSF 8.0 hér  og enn nánar hér hjá Bugbusters.

   
Robot Schedule 10.0 fer að koma...
Nú er komin útgáfa 10.0 af Robot Schedule og er hún í prófun í Danmörku hjá SOSY.  Þegar allt er testað í bak og fyrir munu notendur fá senda diska með nýju útgáfunni.
 

 
Nýtt frá Intermate  -  InterExcel400

Viltu flytja venjulega prentlista beint í nýtt útlit í Excel ?
Þessi mynd segir meira en þúsund orð.

 

Með InterExcel400 er hægt að taka alla prentlista frá System i og færa yfir í Excel form.
Kerfið er alveg frábært og alveg þess virði að kíkja nánar hér.
 


   
Nýtt þjóðskrárár að hefjast -
Allar heildarskrár tilbúnar til dreifingar.
Nú eru komnir til okkar nýir stofnar fyrir þjóðskrá og fyrirtækjaskrá og hægt að sækja þá við fyrsta tækifæri.
Eins og venjulega gerir skrifstofa Þjóðskrár nýjan heildarstofn þjóðskrár sem er miðaður við 1. desember.   Okkur hefur nú borist skráin ásamt nýrri heildarskrá fyrirtækja frá RSK og eru allir heildarstofnar tilbúnir til dreifingar og hægt að nálgast þá.

Eins og allir vita, þá þarf EKKI að endurnýja samningana við Hagstofu vegna þjóðskrár  eða við RSK  vegna fyrirtækjaskrár, heldur gilda þeir áfram milli ára.   Það þýðir að allir sem ætla að halda áfram að sækja skrárnar geta sótt heildarstofnana nú þegar og svo munu Hagstofan og RSK senda út reikninga á næstunni (ef það er ekki þegar búið).

Ferli ehf. varð 15 ára í september á þessu ári og sem fyrr  kappkostum við að veita viðskiptavinum okkar sem allra bestu þjónustu.

Það  er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna að í tilefni afmælisins  munu engar verðbreytingar verða á áskriftarverðum okkar fyrir árið 2007.

Utangarðsskrá:
Bendum sérstaklega á að okkur berast margar fyrirspurnir um kennitölur erlendra aðila sem vinna hérlendis, en þær kennitölur fara ekki í þjóðskrá, heldur eru í sérstakri skrá – svokallaðri Utangarðsskrá. 
Til að fá aðgang að henni verður að breyta samningi við skrifstofu Þjóðskrár og þá er hægt að fá hana til sín einnig og nú er rétti tíminn til að gera breytingar.

Tvær  leiðir við heildaruppfærsluna: 
Hægt að sækja heildarskrá + breytingaskrár síðan 1.des eða sækja beint stöðuskrána.
Um er að ræða tvær leiðir við uppfærslu heildarstofnsins.
Hægt er að taka heildarskrána sjálfa sem er m.v. 1.des. og eftir það þarf að sækja breytingaskrár ef komnar eru (fyrir daglega og vikulega uppfærslu, en eftir áramótin fyrir mánaðarlegu uppfærslu).
Hins vegar er líka hægt að sækja uppfærðan heildarstofn með ákomnum breytingum og hana köllum við stöðuskrá. 

Dæmi
(athugið að í ykkar tilfelli geta síðustu 3 stafirnir í nafninu á skránni verið aðrir, en sama regla á við !):
Ef fyrirtæki tekur skrá sem heitir DAG300E32, þá er um tvennt að velja við áramótauppfærslu:
   - Taka skrána HEI300E32 sem er staðan frá 1.12.
  
- Taka því næst BRE300E32 sem í eru allar breytingar frá 1.12.            
EÐA:
   - Taka skrána STA300E32 en í henni er heildarstaðan á hverjum degi fyrir sig með

Ef sótt er með FTP:
Þeir sem sækja skrá sem t.d. heitir DAG300E30 geta þá sótt skrá sem heitir HEI300E30 og BRE300E30 eða STA300E30.  
Reglan er þá að þeir sem sækja skrár sem byrja á  MAN*, VIK* eða DAG*  geta þá sótt samsvarandi skrá sem  byrja á stöfunum HEI*, BRE* eða STA*.    (Einfaldast er kannski að segja að HEI* + BRE* = STA*. )
Best er að skoða FTP-skriftuna sem þið notið til að sjá þetta nánar eða hafa samband við okkur í Ferli.


Ef sótt er með RSF frá iSeries eða System i (AS/400):
Ef Þjóðarsýn er á vélinni er hægt að fara í skipunina NAFNV og þar í lið númer 5 og fæst þá upp valmynd fyrir áramótakeyrslur.  Hægt er að keyra þar liði 1 og 2 og síðan  3, 4 eða 5 eftir því hvaða leið á að fara.
Ef Þjóðarsýn er ekki á vélinni, er hægt að fara í RSF kerfið og skoða Catalog skrána fyrir Ferli, þá sést að hægt er að sækja skrá sem byrjar á HEI*, STA* eða BRE*  og inniheldur hún viðkomandi heildarstofn.
Við aðstoðum einnig iSeries notendur ef þess er óskað og uppfærum RSF og DataGate ásamt því að uppfæra þjóðskrárkerfið Þjóðarsýn.


Til notenda Íbúasýnar
Nú er að verða tilbúin útgáfa 3.0 af Íbúasýn og vonum við að hægt verði samhliða áramótauppfærslu þjóðskrár að setja inn nýja útgáfu af Íbúasýn í leiðinni. Endilega verið í sambandi við okkur áður en farið er í uppfærsluna.

Ef einhverjar spurningar eru, þá ekki hika við að hafa samband við okkur.

   
Síðustu fréttir síðasta árs:
ASNA Visual RPG.net  námskeið var  4.-6. desember.
Við vorum svo heppin á fá Rick Farina til landsins og kenndi hann okkur ASNA Visual RPG.net dagana 4. - 6. desember.
Rick er einn af þeim allra bestu í faginu og frábær kennari að auki..  Hann ferðast um öll Bandaríkin til að kenna og ráðgefa fyrir ASNA og  vorum við svo heppin að fá hann til að koma til landsins.
Rick kenndi okkur hvernig á að gera veflausnir og Windowsforrit í Visual Studio 2005 með Visual RPG.net,  ásamt því að nálgast gögn á iSeries eða SQL-server með DataGate.
Mikill áhugi var á því sem hægt var að gera með AVR.net og var farið í vefsíðugerð þar sem talað var við gögnin frá iSeries. Einnig voru gerðar vefþjónustur og sýndi Rick hvernig nýta átti vefþjónustur annarra í AVR.net. Allt þetta var svo spennandi að enginn vildi fara þegar tíminn var búinn og Rick hélt þá bara áfram í einn og hálfan tíma í viðbót og sýndi fleiri möguleika.
Engin spurning að þetta kveikti verulega í öllum forriturunum

           Rick að herma eftir vefnum
Klúbbfundur i-klúbbsins  5. desember.

Á þriðjudeginum þann 5. desember komu um 30 aðilar á klúbbfund
i-klúbbsins hjá Ferli, en þar voru kynntar ýmsar nýjungar ásamt því að Rick Farina hélt frábæra kynningu og sýndi hvað hægt er að gera með Visual RPG.net, DataGate og Monarch frá ASNA.
Við hjá Ferli notuðum tækifærið og héldum upp á 15 ára afmælið með afmælistertum og léttum veitingum.
Í lok fundarins var haldinn aðalfundur i-klúbbsins þar sem ný stjórn var klöppuð inn í embætti.


Um 30 gestir komu á fundinn

   


Monarch, AVR.net og mikill áhugi !

   


THANK YOU RICK !