Ferli logo

Fréttir

Fréttir

Fréttir 2008

DESEMBER

Nýir stofnar tilbúnir til dreifingar:

Nú eru allir stofnar sem miðaðir eru við 1. desember tilbúnir til dreifingar.
Ný heildar þjóðskrá og einnig ný heildar fyrirtækjaskrá eru tilbúnir og hægt er að sækja þá nú þegar.
Við erum að ljúka við breytingar á Þjóðarsýn kerfinu vegna færslubreytinga og verður nýja útgáfan tilbúin mjög fljótlega. Biðjum við notendur Þjóðarsýnar endilega að bíða eftir nýju breytingunum áður en sóttur er nýr heildarstofn eða vera í sambandi við okkur áður.
Nánari fréttir af því munu koma síðar.

OKTÓBER - NÓVEMBER

Breyting á fyrirtækjaskrá:

Ríkisskattstjóri vill vekja athygli yðar á því að virðisaukaskattsnúmer munu breytast nú í næsta mánuði.
Virðisaukaskattsnúmer hafa hingað til aðeins verið fimm stafir en verða framvegis sex stafir og jafnframt gert er ráð fyrir að það geti vaxið í 10 stafi.
Rétt þykir að leggja áherslu á að ekki verða gerðar breytingar á þeim virðisaukaskattsnúmerum sem þegar hefur verið úthlutað.
Þau verða áfram fimm stafir en ný virðisaukaskattsnúmer sem úthlutað verður á næstunni munu verða sex stafir.
Ráðgert er að byrjað verið að úthluta nýjum virðisaukaskattsnúmerum á þessu formi í lok október nk.
Þessar breytingar á virðisaukaskattsnúmerum munu líklega hafa áhrif á bókhaldskerfi og ýmsan annan viðskiptahugbúnað sem vinnur með fjárhagsupplýsingar og eins á útgáfu sölureikninga.
Þessum tölvukerfum gæti þannig hugsanlega þurft að breyta til samræmis við ofangreint.
Ástæða þessarar breytingar er sú að virðisaukaskattnúmerum hefur jafnt og þétt fjölgað og nálgast nú hundrað þúsund.
Frekari upplýsingar varðandi þessa breytingu veita Sæmundur Guðmundsson og Ævar Ísberg hjá RSK í síma 563-1100.

Athugasemd frá Ferli ehf varðandi breytingar í dreifingarskrám:
Nýtt svæði mun koma í 300 stafa dreifingarskrána og verður staðsett í dálkum 95 - 104.
Um er að ræða 10 stafa svæði sem byrjar sem hægri stillt 6 stafa tala, en hins vegar er gert ráð fyrir í framtíð geti svæðið orðið allt að 10 stafir og jafnvel með bókstafi fremst.
Því þurfi að breyta núverandi vsk-númeri í 10 stafa bókstafssvæði.
Væntalega þarf að gera breytingar á skráarlýsingum og í skjámyndum.
Allar breytingar verða tilbúnar í Þjóðarsýn á næstunni og verður þá hægt að keyra inn þessar breytingar.
Nánari fréttir af því munu koma síðar.

JÚNÍ - JÚLÍ

XML dreifing á gögnum

Nú er allt til reiðu í XML aðganginum að þjóðskránni og bjóðum við nú upp á tvenns konar aðgang.
Annars vegar er hægt að gera svokallað http-forritakall til okkar og hins vegar er hægt að nota nýja vefsvæðið xml.ferli.is, en það er .net vefþjónusta þar sem komnar eru fjöldamargar aðgerðir.
Hægt er að fá upplýsingar um alla í sömu fjölskyldunni eða fá nafnalista eða færslur úr Utangarðsskrá o.s.frv.
Þú getur skoðað aðgerðirnar, en við þurfum að úthluta lykilorðum til að hægt sé að nota aðgerðirnar.
Sjá nánar hér XML.net aðgerðir fyrir Þjóðarsýn

APRÍL - MAÍ 2008

System i notendur fóru á Common í USA.

Nú nýlega fórum við frá Ferli í hópferð System i notenda til Nashville í Bandaríkjunum.
Þar voru rúmlega 2000 þátttakendur á stærstu System i sýningu ársins og hópurinn frá Íslandi taldi 14 manns.
Klárlega er mikið og margt að gerast í þessu umhverfi og sem dæmi má nefna að IBM var með sérstaka athöfn á ráðstefnunni og kynnti samruna IBM Unix og System i véla í eina vél undir nafninu Power Systems.
Þótt vélin hafi heitið AS400, iSeries, System i og nú Power Systems, þá keyrir allt jafn vel sem fyrr. Sjá nánar hér frá ráðstefnunni

JANÚAR 2008

Ný heildarfyrirtækjaskrá með breyttum ÍSAT-kóda frá 17. jan.

Þann 16. jan fáum við breytta heildar fyrirtækjaskrá þar sem ISAT kódinn er nýr !
Við ætlum að setja hana beint í farveginn til þeirra sem sækja daglega og því verður skráin stærri á morgun 17. en venjulega.
Það þarf að uppfæra ISAT-kódaskrána sjálfa og hægt er að sækja hana hér, bæði sem textaskjal (með og án semikommu milli svæða) eða sem Excel-skjal.
Sjá nánar hér
Notendur Þjóðarsýnar á iSeries og DataGate fyrir Windows eru vinsamlega beðnir að hafa samband við okkur og þá leiðbeinum við hvernig hægt er að sækja skrána beint inn á vélina ykkar.
Síminn hjá okkur er 544-5888.

DESEMBER 2007

Nýir heildarstofnar tilbúnir til dreifingar

Nýir heildarstofnar fyrir þjóðskrá og fyrirtækjaskrá eru tilbúnir og ættu allir okkar notendur að vera búnir að fá sendar nánari upplýsingar.
Ef þú ert að sækja frá okkur gögn, en hefur ekki fengið skeyti, endilega hafðu samband hið fyrsta !
Nú er um að gera að sækja og uppfæra sem fyrst.

Jólakort Ferlis er rafrænt í ár

Þetta árið tókum við í Ferli ehf. þá stefnu senda ekki út jólakort til okkar viðskiptavina, heldur styrkjum við Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur sérstaklega.
Við sendum öllum viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum
rafrænt jólakort sem má skoða hér. .
Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Með bestu kveðjum,
Björn, Guðrún og Valdimar
Ferli ehf.

Sveitarfélagið Skagafjörður komið í hóp Íbúasýn notenda

Íbúasýn er komin upp hjá hátt á þriðja tug sveitarfélaga og nú hefur Sveitarfélagið Skagafjörður bæst í hópinn. Við hjá Ferli bjóðum þau velkomin í hópinn !

Nýtt þjóðskrárár að hefjast

Þann 1. desember hófst nýtt þjóðskrárár. Þar með styttist í að nýjir heildarstofnar verði tilbúnir til afhendingar. Fljótlega munum við senda frá okkur nánari upplýsingar.

NÓVEMBER 2007

Viltu gera XML-vefþjónustur, forrit eða vefi sem tala við System i ?

XML síða Ferlis ehf

Nú er alveg ótrúlega auðvelt að gera vefþjónustur frá System i með Visual RPG.net og DataGate.net. Allir RPG-forritarar fara létt með þetta ! Hafðu endilega samband ef þú vilt skoða þetta nánar. Við gefum þér lykilorð og þá getur þú prófað hvernig svona vefþjónusta keyrir.

30% jóla-tilboðs-afsláttur frá ASNA af öllum þeirra tólum fyrir iSeries og System i.

OKTÓBER 2007

Íbúasýn komin víða - nú líka hjá Sandgerðisbæ

Íbúasýn er komin upp hjá á þriðja tug sveitarfélaga og nú í síðustu viku settum við kerfið í gang hjá Sandgerðisbæ. Við bjóðum Sandgerðisbæ velkominn í hóp notenda Íbúasýnar !! Við í Ferli verðum með sýningarbás á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna dagana 5. og 6. nóvember n.k. á Nordica hótelinu. Komdu þangað og kíktu á Íbúasýn og Þjóðarsýn !

Robot/SECURITY - nýtt kerfi frá Help/Systems

Með kerfinu fylgist þú með öllu sem snýr að öryggismálum og tengingum við vélina. Robot/Security skoðar allt sem gerist í gegnum "Exit Point", fylgist með breytingum notendaskilgreininga og vaktar "security audit journal (QAUDJRN)".

Hver er að nota FTP og ODBC tengingar - viltu ekki vita það ? Minnum einnig á öll hin kerfin, en í Robot-fjölskyldunni eru nú hátt í 20 kerfi sem hvert um sig sinnir ákveðnu hlutverki.

RSF útgáfa 8.1 - Speglar allt á milli véla !

Nú er komin útgáfa 8.1 af RSF (Remote Software Facility) frá BugBusters. Í nýju útgáfunni er búið að bæta við að hægt er að spegla allar týpur af gögnum...