Fréttir
Fréttir 2009
DESEMBER
Nýir heildarstofnar tilbúnir til dreifingar
Nú eru allir stofnar sem miðaðir eru við 1. desember tilbúnir til dreifingar.
Sem sagt nýjar heildarskrár af þjóðskrá og fyrirtækjaskrá eru tilbúnar og hægt er að sækja þær nú þegar.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband.
Minnum á færslulýsingar og uppfærðar hliðarskrár hér.
NÓVEMBER
Ferli miðlar hlutafélagaskrá frá RSK
Við hjá Ferli höfum opnað XML dreifingu á gögnum úr hlutafélagaskrá, en áður höfum við verið að dreifa gögnum úr þjóðskrá og fyrirtækjaskrá á XML-formi.
Undirritaður var samningur við RSK og er dreifingin tilbúin á vefsvæðinu xml.ferli.is
Nú þegar eru fyrstu fyrirtækin að byrja að prófa aðganginn.

Á myndinni eru Ásgeir Heimir Guðmundsson og Sævar Vigfússon frá RSK og Björn Hilmarsson frá Ferli.
OKTÓBER
Heimsókn frá ASNA International til Íslands
Tim Jannsen kom fyrst til landsins árið 2000 til að kenna Visual RPG og nú aftur til að kenna Visual RPG.net.
Tim er hafsjór af fróðleik, frábær kennari og fyrirlesari og engin spurning að mikið var lært þessa dagana.

Á myndinni er Tim að lýsa ágæti Visual RPG.net fyrir gestum.
SEPTEMBER - OKTÓBER
Ferli var á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga
Eins og undanfarin ár var Ferli með sýningarbás á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna, en ráðstefnan var dagana 1. og 2. október.
Kynntar voru lausnir eins og Þjóðarsýn þjóðskrárkerfið og
Íbúasýn og Flóðasýn fyrir sveitarfélög og einnig Renet stjórnkerfið fyrir tölvustofur í skólum.
JÚLÍ
Ferli kynnir eZee hótelkerfið
eZee FrontDesk NextGen er frábært kerfi fyrir hótel og gististaði.
Eftir að hafa skoðað eZee hótelkerfið erum við fullviss um það að það eigi eftir að slá í gegn !
Ótrúlega margar aðgerðir og allt einstaklega einfalt og þægilegt í notkun.
Klárlega kerfi sem tekið verður eftir !
Bendum sérstaklega á sérstaka síðu um eZee-kerfið:
Allar nánari upplýsingar fást hér.
JÚNÍ
Ný deild í Ferli - Margmiðlunardeildin
Hún Guðrún var að útskrifast sem margmiðlunarfræðingur eftir tveggja ára nám við Margmiðlunarskólann og óskum við henni innlega til hamingju með áfangann.
Vefurinn okkar í Ferli er einmitt hannaður af Guðrúnu sem og nýtt útlit á merki Ferlis.
Hönnun á heimasíðum, Flash-síðum, hreyfimyndum og fleiru er sem sagt í höndum Guðrúnar.
MAÍ
Nýjungar í InterForm
Nýtt útlit, pdf eða tölvupóstur... allt hægt með Interform beint frá System i.
Hér er frábært kynningarvideo sem sýnir hversu öflugt Interform kerfið er.
Það tekur ekki nema tvær mínútur - endilega smelltu á myndina hér að neðan !
Nýjungar í Interform og í InterExcel:
Með InterForm er auðvelt að prenta lista út með nýju útliti eða jafnvel yfir í pdf-skjöl.
Með InterExcel er leikur einn að færa prentlista beint yfir í Excel og líka hægt að fylla beint út í fyrirfram gerð "template" í Excel.
MARS
Allir notendur Íbúasýnar nota nú útgáfu 3.1:
Nú eru öll sveitarfélög sem nota Íbúasýn búin að uppfæra í nýjustu útgáfuna 3.1
Nýja útgáfan m.v. nýjustu breytingarnar okkar á Þjóðarsýn-grunninum og eru því allir komnir með nýjustu útgáfuna af Þjóðarsýn líka.
Margar nýjungar komu í þessari útgáfu eins og uppfærslusagan og tenging við ONE system.
Nú er bara um að gera að senda okkur góðar hugmyndir fyrir næstu útgáfu.
Allar nánari upplýsingar um Íbúasýn fást hér.
JANÚAR
Margir að uppfæra þessa dagana:
Mörg fyrirtæki hafa sótt nýja heildarstofna.
Við erum þessa dagana að uppfæra Þjóðarsýn og Íbúasýn hjá notendum og gengur það mjög vel.
Fjöldamargir hafa líka sótt nýja stofna og uppfært hjá sér, en við aðstoðum einnig fyrirtæki ef þess er óskað.
DESEMBER 2008
Allir stofnar tilbúnir til dreifingar:
Nú eru allir stofnar sem miðaðir eru við 1. desember tilbúnir til dreifingar.
Ný heildar þjóðskrá og einnig ný heildar fyrirtækjaskrá eru tilbúnir og hægt er að sækja þá nú þegar.
Við erum að ljúka við breytingar á Þjóðarsýn kerfinu vegna færslubreytinga og verður nýja útgáfan tilbúin mjög fljótlega.
Biðjum við notendur Þjóðarsýnar endilega að bíða eftir nýju breytingunum áður en sóttur er nýr heildarstofn eða vera í sambandi við okkur áður.
|