Ferli logo

Fréttir

Fréttir

Fréttir 2010

DESEMBER

Allar heildarskrár tilbúnar til dreifingar

Nú erum við komin með nýja heildarstofna af þjóðskrá og fyrirtækjaskrá.
Þessar skrár miða við stöðuna þann 1. desember. Allt er til reiðu og hægt er að sækja skrárnar þegar hentar.
Við sendum viðskiptavinum okkar einnig allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar í tölvupósti.
Ef þú ert að sækja gögn frá Ferli en ekki berst skeyti til þín, vinsamlega láttu okkur vita.

Minnum á síðuna um allar færslulýsingar og hliðarskrár hér. en breytingar hafa orðið á póstnúmeraskrá og sveitarfélagaskrá.

SEPTEMBER

Miklar breytingar í útgáfu 8.6 af RSF sendingarkerfinu

Á næstu dögum er væntanleg ný útgáfa af RSF, en það sér um allar gagnasendingar á milli IBM System i véla.
Nýir eftirlitsmöguleikar leyfa t.d. að senda tölvupóst beint til umsjónarmanna ef upp koma villur á vélinni.
Með RSF er einnig sérlega auðvelt að spegla gögn á milli véla og er nú ein hagkvæmasta speglunarlausnin á þessar vélar.
Sjá nánar um RSF á síðunni hér.

ÁGÚST

Ný útgáfa komin af eZee hótelkerfinu

eZee FrontDesk NextGen er frábært kerfi fyrir hótel og gististaði.
Við erum að byrja að kynna þetta skemmtilega hótelkerfi og höfum fengið góðar viðtökur.
Kerfið, sem er uppsett í tugum þúsunda eintaka í 70 löndum, er ótrúlega öflugt og inniheldur allar aðgerðir sem hótel og gististaðir þurfa. eZee er auðvitað eins og nafnið segir einstaklega einfalt og þægilegt í notkun. Klárlega kerfi sem tekið verður eftir og verðin koma sérstaklega á óvart !

Bendum sérstaklega á sérstaka síðu um eZee-kerfið og nánari upplýsingar hér.

MAÍ

Breyting á dreifingarskrá Utangarðsskrár þann 1. júní

Í ljós hefur komið að í dreifingu á Utangarðsskrá er samsláttur er á tveimur svæðum í dreifingarskránni.
Þessu verður breytt frá og með 1. júní, en þá verður svæðið í staðsetningum 85-115 fyrir "Sveitarfélag dvalarstaðar" og staðsetningar 170-200 verða fyrir "Röðunarsvæðið".

Minnum á færslulýsingar á síðunni hér.
Allar nánari upplýsingar fást hjá okkur í Ferli í síma 544-5888.

FEBRÚAR

Ferli kynnir eZee hótelkerfið

eZee FrontDesk NextGen er frábært kerfi fyrir hótel og gististaði.
Við erum að ljúka við þýðingar á eZee hótelkerfinu og brátt hefjumst við handa við að kynna kerfið af fullum krafti.
Kerfið er ótrúlega öflugt, inniheldur allar aðgerðir sem hótel og gististaðir þurfa og er allt einstaklega einfalt og þægilegt í notkun. Klárlega kerfi sem tekið verður eftir og verðin koma sérstaklega á óvart !
       eZee hótelkerfið
Bendum sérstaklega á sérstaka síðu um eZee-kerfið og nánari upplýsingar hér.

JANÚAR

Uppfærslur á heildarstofnum þjóðskrár og fyrirtækjaskrár.

Nú eru fjöldamargir búnir að uppfæra stofnana sína og allt hefur gengið vel.
Við höfum verið að uppfæra stofnana hjá notendum Þjóðarsýnar og Íbúasýnar.
Að þessu sinni eru engar breytingar í færslulýsingum og því um að gera að keyra nýju stofnana inn við fyrsta tækifæri.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband.
Minnum á færslulýsingar og uppfærðar hliðarskrár hér.