Aðili í þjóðskrá
Upplýsingar um aðila - FLIPI 1
Þegar tvísmellt er á aðila af aðalvalmynd kemur upp þessi mynd sem sýnir nánari upplýsingar um viðkomandi aðila.
Hver aðili í þjóðskrá/Íbúasýn hefur lögheimiliskóda sem þýðir ákveðið götunúmer og húsnúmer. Er þannig hver aðili
tengdur gegnum lögheimiliskódann í götuskrána.
Íbúðanúmer er sérstaklega haldið utan um í þessu kerfi. Hægt er að stofna / breyta /eyða íbúðanúmerum frá
upphafsmyndinni. Með því er hægt að halda utan um hverjir búa saman í íbúð.
Fjölskyldunúmer er kennitala þess aðila í fjölskyldunni sem elstur er.
Einnig kemur fram hver makinn er ef um maka er að ræða.
Ef viðkomandi hefur bannkóda hjá Þjóðskrá birtist Já í svæðinu Bannkódi. Það þýðir að ekki megi senda ruslpóst og
happdrættismiða á viðkomandi.