Eldri sambúðartilkynningar
Áður sendar sambúðartilkynningar til Þjóðskrár
Allar sambúðartilkynningar sem gerðar eru í Íbúasýn frá og með útgáfu 3.2 fara í sérstaka uppsöfnunarskrá þar sem hægt er að leita í þeim.
Hægt er að leita eftir ártali og mánuði eða eftir kennitölu.
Ef slegið er inn ártal og mánaður, þá kemur listi yfir allar sambúðartilkynningar sem gerðar voru í þeim mánuði.
Ef slegin er inn kennitala, þá koma þær sambúðartilkynningar upp á skjáinn sem hafa þessa kennitölu í sér.
Hægt er svo að smella á línuna og sjá afrit af sambúðartilkynningunni og einnig er hægt að prenta samrit þaðan.