Íbúasýn - handbók

Útlistun

Útlistun

Previous topic Next topic  

Útlistun

Previous topic Next topic  

Útlistun - Hverfi, skólahverfi, leikskólahverfi, kjördeild

 

urvinnslur_utlistun

 

 

Útlistun úr þessum skrám eru allar sambærilegar og því eiga þessar skýringar og dæmi hér fyrir neðan við um alla fjóra útlistunarliðina

en dæmin eru tekin úr hverfaskránni.

 

Þegar búið er að setja inn skilyrðin fyrir útvalninguna er ýtt á hnappinn “Útlistun” og fer þá í gang vinnsla sem

getur tekið nokkra stund. Útvalningin birtist svo í skjámynd sem síðan er hægt að flytja yfir með hnappnum “Afrita”

yfir í Excel/Word o.s.frv.

 

Út frá þessari mynd er hægt að fá fjölmargar útlistanir.

Með því að tvísmella á fyrirsögn í hverjum dálki fyrir sig er hægt að endurraða listanum í röð á þann dálk.

 

 

Útlistun 1:

Heildarfjöldi íbúa

Birtir fjöldatölur allra íbúa sveitarfélagsins óháð aldri og hverfum.

Hvorki er hakað við “Velja aldursskiptingu” né “Velja hverfaskiptingu”.

 

utlistun_1

 

 

Útlistun 2:

Heildarfjöldi íbúa skipt eftir fæðingarári.

Birtir fjöldatölur allra íbúa sveitarfélagsins flokkaðar niður eftir fæðingarári.

Hér er einungis hakað við “Velja aldursskiptingu”.

 

utlistun_2

 

 

Útlistun 3:

Heildarfjöldi íbúa í hverju hverfi

Hér eru birtar fjöldatölur íbúa í hverju hverfi fyrir sig.

Einungis er hakað við “Velja hverfaskiptingu”.

 

utlistun_3

 

 

Útlistun 4:

Fjöldi íbúa í hverju hverfi skipt niður eftir aldri.

Hér er fjöldi íbúa í hverju hverfi flokkaður eftir fæðingarári.

Hakað er við “Velja aldursskiptingu” og einnig er hakað við “Velja hverfaskiptingu”.

 

utlistun_4

 

 

Útlistun 5:

Valinn út ákveðin fæðingarár óháð hverfum.

Hér birtist heildarfjöldi íbúa í ákveðnum aldurshópi óháð hverfaskiptingu.

Hakað er við “Velja aldursskiptingu” og valið fæðingarár frá og til.

Í þessu dæmi er fundinn heildarfjöldi barna fædd á árunum 2000 - 2005.

 

utlistun_5

 

 

Útlistun 6:

Valin út ákveðin fæðingarár og flokkuð eftir hverfum.

Hér birtist heildarfjöldi íbúa í ákveðnum aldurshópi flokkaður eftir hverfum.

Hakað er við “Velja aldursskiptingu”, valið fæðingarár frá og til og hakað við “Velja hverfaskiptingu”.

Í þessu dæmi er fundinn fjöldi íbúa fæddir á bilinu 1982 – 1986 í hverju hverfi fyrir sig.

 

utlistun_6

 

 

Útlistun 7:

Valin út ákveðin fæðingarár í ákveðnum hverfum.

Hér er listaður út fjöldi íbúa miðað við ákveðin fæðingarár í ákveðnu hverfi.

Hakað er við “Velja hverfaskiptingu”, valið fæðingarár frá og til, hakað við “Velja hverfaskiptingu”

og valið ákveðið hverfi.

 

utlistun_7

 

 

Útlistun 8:

Fjöldatalning í einu ákveðnu hverfi óháð fæðingarári.

Hér er listaður út fjöldi íbúa í ákveðnu hverfi en ekki flokkun eftir fæðingarári.

Einungis er hakað við “Velja hverfaskiptingu” og valið ákveðið hverfi.

 

utlistun_8

 

 

Útlistun 9:

Fjöldatalning í öllum götum/einni götu óháð aldri.

Hér er fundinn fjöldi íbúa í ákveðinni götu eða öllu götum hverfisins óháð aldri.

Hakað er við “Velja hverfaskiptingu”, valið ákveðið hverfi og valin ákveðin gata eða allar götur.

 

utlistun_9

 

 

Útlistun 10:

Fjöldatalning í ákveðinni götu/öllum götum skipt eftir fæðingarári.

Hér er fundinn fjöldi íbúa í ákveðinni götu/öllum götum, flokkað eftir fæðingarári.

Hakað er við “Velja aldursskiptingu”, valið fæðingarár frá og til ef við á, hakað við “Velja hverfaskiptingu”,

valið ákveðið hverfi og valin ákveðin gata.

 

utlistun_10

 

 

Útlistun 11:

Nafnalisti.

Hægt er að fá nafnalista yfir íbúa í útlistun 9 og útlistun 10.

Koma þá ekki fjöldatölur heldur listi yfir alla þá íbúa sem uppfylla þessi valin skilyrði.

Bætt er þá við haki í “Birta nafnalista”.

 

utlistun_11

 

 

Útlistun - Kjördeild:

Þessi listi er ekki samkvæmt reglum um kjörlista.

Þessi listi sýnir alla þá sem búsettir eru í þessari kjördeild og hafa náð 18 ára aldri á þeim degi sem útskriftin er gerð.