Íbúasýn
Íbúakerfi fyrir sveitarfélög
Íbúasýn er sérhannað íbúakerfi fyrir bæjar- og sveitarfélög og sér hvert sveitarfélag aðeins þá einstaklinga sem búsettir eru í því sveitarfélagi. Grunnurinn að gögnum Íbúasýnar eru færslurnar úr þjóðskrárkerfinu Þjóðarsýn og því fylgjast þessi kerfi að.
Hægt er að fá uppfærslu á þjóðskrána nú mánaðarlega, vikulega eða daglega og því liggja undir í Íbúasýn alltaf réttar upplýsingar.
Hægt er að skoða og leita að aðilum í sveitarfélaginu eftir kennitölu, nafni eða heimili og sjá þá strax ýmsar upplýsingar í listanum.
Ótal möguleikar með Íbúasýn
- Skoða alla bæjarbúa, leita eftir kennitölu, nafni eða heimili
- Telja íbúa eftir aldri eftir götum eða hverfi eða alla í bænum í einu ?
- Gera nafnalista eftir árgöngum eða götum eða hverfum ?
- Sjá lista yfir þá sem eru nýfluttir inn í sveitarfélagið ?
- Skoða hreyfingar eða samtölulista sveitarfélags (fjöldi fæddra og fjölda látinna)
- Sjá kynjaskiptingu og fjöldatölur íbúa fyrir hverja götu fyrir sig ?
- Taka allar niðurstöður og færa þær í Excel til frekari vinnslu ?
- Prenta búsetuvottorð eða flutningstilkynningu
- Skoða lista yfir aðila úr Utangarðsskrá sem tilheyra sveitarfélagi
- ALLT þetta og miklu meira finnst í Íbúasýn 3.0 !
Mögulegt er að leita að íbúum sveitarfélagsins eftir nafni, kennitölu, heimilisfangi eða íbúðanúmeri.
Kerfið bíður upp á mikið af úrvinnslum.
Þessi mynd birtir upplýsingar um alla nýja íbúa sveitarfélagsins. Sambærilegan lista er hægt að fá yfir brottflutta.
Hér má sjá samtölulista yfir aldursskiptingu í hverfum.
Eins má fá nafnalista yfir öll hverfi miðað við ákveðinn aldur.
Fjöldi útlistana og úrvinnslna er í boði og er hægt að færa niðurstöður yfir í Excel og nýta upplýsingarnar þar.
Flóðasýn
Flóðasýn er sérstök viðbót við Íbúasýn og er fyrir þau sveitafélög sem búa við snjóflóða- eða flóðahættu.
Með Flóðasýn er haldið sérstaklega utan um snjóflóðahverfi, en þau geta verið allt önnur en í venjulegri hverfaskiptingu gatna í bænum.
Hugmyndir um Flóðasýn voru unnar með starfsfólki Fjallabyggðar og var markmiðið að auðvelt væri að nálgast upplýsingar um íbúa og finna hver býr í hvaða húsi samkvæmt upplýsingum úr þjóðskránni.
Flóðasýn er viðbótarkerfi við Íbúasýn
Heldur utan um skiptingu húsa bæjarins í flóðahverfi.
- Skiptir upp götum og húsum niður í snjóflóðahverfi.
- Útlistanir og talningar m.v. flóðahverfi.
- Hægt að gera lista í Excel yfir fjöldatölur íbúa allra húsa í hverfum.
- Hægt að gera lista í Excel yfir íbúa allra húsa.
Allar nánari upplýsingar veittar af starfsfólki Ferlis - endilega hafið samband !
|