InterForm fyrir System i
Breytir útliti prentlista án forritabreytinga
Ferli ehf. er umboðsaðili InterForm á Íslandi síðan 2000
Interform breytir útlistunum, býr til pdf og sendir tölvupóst
Við hjá Ferli ehf. erum stolt af því að vera umboðsaðili InterForm á Íslandi !
Interform er komið í gang hjá fjöldamörgum fyrirtækjum sem nota System i og hefur gjörbylt öllu prentúttaki hjá þeim.
Nú er komið nýtt videó sem sýnir alla kosti þess að nota Interfom
Hér er frábært kynningarvideo sem sýnir hversu öflugt Interform kerfið er.
Nýtt útlit, pdf eða tölvupóstur... allt hægt með Interform !
Það tekur ekki nema tvær mínútur - endilega smelltu á myndina hér að neðan !
Interform400 er tilvalið fyrir þau fyrirtæki sem vilja gera gagngerar breytingar á útskriftum án þess að þurfa að breyta forritum.
Kerfið tekur prentlista eins og þeir koma úr System i og gefur möguleika á að breyta fontum, setja skugga, ramma og rasta ásamt því að geta fært upplýsingar fram og til baka á blaðinu.
Einnig hægt að láta Interform raða prentlistum í aðra röð heldur en sú sem kemur út frá System i vélinni.
T.d. væri hægt að taka skuldalista sem væri í póstnúmeraröð og láta Interform raða honum í röð á dagsetningu skuldar og jafnvel "splitta" honum upp í þrjá lista eftir því hversu margir dagar væru á skuldinni og einnig að setja skuggabox utan um skuldatöluna ef hún er hærri en ákveðið viðmið.
Möguleikarnir eru alveg ótrúlegir og á einfaldan máta er hægt að gera frábæra andlitslyftingu á gömlu góðu "grænu" listunum með því að láta þá líta út eins og þeir væru prentaðir úr Wordskjali.
Eftir að búið er að setja upp hvernig listinn á að líta út, þá þarf ekki að hreyfa við honum eftir það, því Interform grípur listann næst þegar hann kemur á prentbiðröðina og setur í gegum ákveðna vinnslu sem breytir honum í nýja útlitið.
Með kerfinu er hægt að gera pdf-skjöl og láta vélina senda skjalið sem viðhengi á netfang sem finnst í textanum.
Munið við erum alltaf bara að vinna með prentlistana og engin forrit.
Kerfið gerir einnig alla meðferð á eyðublöðum “overlay” mjög einfalda og gefur marga möguleika við uppsetningu þeirra. Til dæmis er hægt að teikna upp eyðublað í Word eða nánast í hvaða teikniforriti sem er.
Eyðublöðin er líka hægt að gera í gamla góða græna skjánum og síðan eru þau skoðuð í sérstöku forriti sem fylgir og heitir SwiftView, en með því erum við nánast að gera "PrintPreview" á listann sem við erum að breyta og því auðvelt að vinna með þessar uppsetningar.
Við prentun skeytir iSeries vélin saman eyðublaðinu (“overlay”) og útskriftinni sjálfri.
Það sem gerist er að útskriftinni er breytt í PCL-kóda sem allir PC-prentarar þekkja og því nánast hægt að skrifa listana á hvaða prentara sem er (og í litum!)
Með kerfinu er hægt að spara töluverða peninga við formprentun. Til dæmis er hægt að setja “logo” í allar útskriftir, ramma, rasta, stóra/litla stafi í mörgum leturgerðum og margt fleira.
Margir möguleikar og mörg hliðarkerfi
PageBuilder
Auðvitað getum við líka breytt prentlistum með forritun !
Ef með þarf, þá er hægt að kalla á sérstakan PAGEBUILDER og þá í gegnum RPG forrit er hægt að taka hvaða línu sem er í prentlistanum og bæta við hana eða breyta og þannig er hægt að fullgera prentlista, þ.e. hægt er t.d. að setja inn fyrirsagnir eða ná í ný gögn úr skrám og setja inn í prentlistann. Nánast er allt orðið hægt að gera með Interform
Barkódar prentaðir
Í Interform er ótrúlega auðvelt að prenta barkóda og eru allar týpur kódans tilbúnar í kerfinu.
Límmiðar prentaðir
Hægt er að tengja Interform við sérstaka Zebra-límmiðaprentara.
Kerfið er leiftursnöggt að prenta miðana og hægt er að prenta línur, rasta, lógo o.fl.
Interform Archive
Skjalavistun og geymsla á prentlistum gerð að léttum leik.
Í kerfinu er hægt að leita í gegnum pdf-skjöl og prentlistana eftir ákveðnum leitarsvæðum. Mjög einfalt að skilgreina leitarsvæði og skilyrði og hægt að byggja ný og ný leitarskilyrði jöfnum höndum.
Interform PDF-Security
Sérstök viðbót við Interform sem býr til dulkóðaðar pdf-skrár og getur þá móttakandi einungis opnað ef hann hefur "digital certificate". Öflugt og öruggt.
InterExcel
Nýjasta kerfið frá Interform tekur hvaða prentlista sem er af System i og breytir þeim beint yfir í glæsileg Excelskjöl.
Kerfið er ótrúlega ódýrt og þægilega einfalt.
Tengjast heimasíðu INTERFORM
|