Presto
"Grænar" skjámyndir á vefinn án forritabreytinga
Ferli ehf. er umboðsaðili BCD-Presto síðan 2010
Nýtt útlit á allar IBM System i skjámyndir:
Með Presto færist öll skjávinnsla á System i yfir á vefinn og notendur þurfa ekki að vera í svokallaðri 5250-skjálotu.
Engar forritabreytingar þarf til að hægt sé að byrja að vinna í Presto og allar myndir koma í nýju útliti yfir í vefumhverfið.
Bæklingar um Presto:
Hægt að breyta sérstaklega hverri síðu:
Auðvitað er svo hægt að bæta við sérstaklega á ákveðnar skjásíður og t.d. bæta við myndum, tenglum, setja fellibox í valsvæði og margt fleira.
Hægt er að taka t.d. val fyrir framan flettimyndir og setja myndir í staðinn fyrir framan.
Fyrir breytingu
Eftir breytingu
Hægt er að taka út valliði í valmyndum og setja tengla í staðinn og þannig nýtist músin enn frekar í skjámyndunum.
Einstaklega auðvelt er að haka við að dagsetningarsvæði eigi að kalla upp dagatal þegar smellt er á svæðið.
Með Presto fylgir sérstakt tól þar sem hægt er að taka hverja skjámynd og breyta henni sérstaklega og þannig auðvelt að velja þær síður sem mest eru notaðar til breytinga.
Þegar farið er að vinna með síðurnar þannig, þá er fullur aðgangur að öllum html-kóda og því enn auðveldara fyrir vikið að bæta inn t.d. Ajax eða JavaScript möguleikum.
Þjóðarsýn í Presto
Hér að neðan sést hvernig Þjóðarsýn lítur út eftir smávægilegar breytingar á skjásíðum.
Hafðu samband:
Kíktu endilega á tengilinn hér að neðan og hafðu samband ef þú vilt vita meira um Presto.
Nánar um Presto hér.
Tengjast heimasíðu Presto
|