ReLanPro kennslukerfi
Veitir heildarstjórn á vélum tölvustofunnar
Ferli ehf. er umboðsaðili Renet og ReLanPro síðan 2003
ReLanPro kennsluhugbúnaður
Ferli ehf. er umboðsaðili fyrir sérhæfðan kennsluhugbúnað sem kemur frá Renet í Finnlandi, en það er hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur sérhæft sig í gerð kennsluhugbúnaðar. Kerfi frá þeim eru í notkun í þúsundum skóla í yfir 25 löndum og hafa reynst sérstaklega vel.
Fyrst um sinn kynnum við sérstaklega kerfið sem er fyrir tungumálakennslu og heitir það "LanguageStudio"
Fyrsta uppsetningin á kerfinu var í Hofsstaðaskóla í Garðabæ.
ReLanPro kerfið er sérhannað stjórnkerfi fyrir kennara í tölvustofu
Kerfið skiptist í tvennt:
- ReLanPro Control - stjórnkerfi
Leyfir að stýra öllum tölvum kennslustofunnar frá tölvu kennarans.
Kennari getur m.a. gert eftirfarandi:
- Haft auðvelda stjórnun á kerfinu, enda allt á íslensku !
- Stjórnað öllum tölvum nemenda í stofunni
- Slökkt á skjám og/eða læst lyklaborðum hjá öllum, sumum eða stökum
- Búið til próf, sent til nemenda og fengið svör vistuð og yfirfarin til baka
- Fylgst með skjámyndum nemenda og séð margar í einu eða eina og eina hjá nemendum
- Hægt að leyfa eingöngu notkun á ákveðnum forritum og því ekki hægt að komast í önnur
- Getur sent út á skjái nemenda allt sem er á kennaravél og því þarf t.d. ekki skjávarpa
- Slökkt eða endurræst allar vélar í einu með einni aðgerð frá kennaravél
- o.fl. o.fl.
- ReLanPro Multimedia Language Studio - margmiðlunarkerfi fyrir tungumálakennslu:
Tölvan er notuð í tungumálakennslu og kennsluefni er á rafrænu formi við.
Þessi hluti innifelur allt sem ReLanPro Control getur og að auki:
- Hægt er að nota myndir, hljóðskrár og vídeómyndir til að kenna tungumál eða í raun hvaða fag sem er þar sem til er kennsluefni á rafrænu formi
- Nemendur geta spurt kennara í gegnum heyrnartól og hljóðnema
- Nemendur geta spilað, stöðvað og stýrt hljóð- og myndskrám á sínum hraða
- Kennari getur sent videomyndir til allra, spilað fyrir alla í einu, suma eða staka nemendur
- Kennari getur sent myndir, skjöl til nemenda og látið þá svara skriflega inn í skjölin
- Látið nemendur taka munnleg próf og vistað hljóðskrár nemenda til að fara yfir síðar
- Fylgst með stöðu hvers og eins og séð hvar hann er staddur í verkefnum
- Hægt að skipta nemendum í hópa og þeir geta í gegnum hljóðnema talað við hvorn annan og æft upplestur og samtöl
- o.fl. o.fl.
Handbækur og bæklingar
ReLanPro kerfið er allt á íslensku og sérlega auðvelt í notkun. Mjög auðvelt er að færa gamalt kennsluefni (hljóðsnældur) yfir á tölvutækt form og nýta í tölvustofunni og eru notuð sérstök hliðarkerfi sem nýtast í yfirfærslu gagna.
Einnig eru sérstök hliðarkerfi sem t.d. leyfa kennurum að gera próf og senda til nemenda.
Kynning á ReLanPro
Í Finnlandi keyrir Renet rútan og kynnir kerfið um Evrópu
Hægt er að fara inn á vefinn hjá ReLanPro og sjá nánar um ReLanPro LanguageStudio og fleiri kerfi frá þeim.
Tengjast heimasíðu ReLanPro
|