Ferli logo

RSF (Remote Software Facility) frá Bugbusters

RSF

RSF sendir og speglar gögn milli System i véla

Ferli ehf. er umboðsaðili Bugbusters síðan 1992

RSF er á um 60% System i véla á Íslandi í dag

RSF (Remote Software Facility) er ótrúlega einfalt samskiptakerfi fyrir iSeries vélar. Það býr til allar tækja- og línuskilgreiningar sjálfvirkt og setur System i vélar í samband á augabragði. Þú getur svo farið á milli véla í beint skjásamband eða sótt/sent skrár eða prentlista á milli vélanna. Mest er notuð tenging beint yfir Internet (TCP/IP), en auk þess hægt að nota venjulega upphringilínu eða fasta línu af gerðinni SDLC, X.25 og fleiri. Allt þetta gerir gagnaflutning á System i að léttum leik. Sérstaklega er auðvelt að senda eða sækja gögn yfir Internetið með RSF.

RSF-speglar gögn á milli véla einnig !

Nú er RSF orðið að fullkomnu speglunarkerfi. Kaupa þarf viðbótarleyfi á grunnkerfið og þá er allt tilbúið í speglun á milli véla

Með nýju útgáfunni af RSF er hægt að spegla eftirfarandi gagnatýpur á milli véla:

  • User profiles
  • System values
  • Network attributes
  • Authorization lists
  • Data queues
  • Object-level authorities
  • Spooled files
  • Message queues
  • Data areas
  • Database files
  • IFS objects
  • og fleira

Einnig er komin skipun sem afritar eina vél yfir á aðra sem er auðvitað sérstaklega þægilegt t.d. þegar skipt er um vél og flytja þarf allt yfir á nýju vélina. Hafðu samband og við segjum þér nánar frá þessu og verðin eru algjörlega ótrúleg.

Sjá nánar lista yfir nýjungarnar í nýjustu útgáfunni.

RSF-Install Aid - Ókeypis hugbúnaður frá Bugbusters !

Hægt er að fá fylgiforritið RSF Install Aid ókeypis fyrir System i. Það er kerfi sem keyrir á PC og gerir notendum kleift að senda “savefile” frá PC yfir á System i. Gögnin úr “savefile” eru lesin inn í viðkomandi safn og hægt að vinna með þau síðan þar. Kerfið er sérstaklega auðvelt og þjált í notkun og krefst ekki að RSF sé inni á System i vélinni. Hægt er að velja um RSF sendingu eða FTP sendingu inn á System i vélina.

CDBUILDER - Þarftu að dreifa hugbúnaði fyrir System i ?

Hvernig væri þá að þú skoðaðir CDBUILDER frá Bugbusters. Það er kerfi sem býr til allar skrár sem þarf til að búa til geisladiska með iSeries gögnum. T.d. dreifir Ferli nú þjóðskránni árlega á geisladiski sem búinn er til af þessu kerfi. Hægt er að láta geisladisk í geisladrifið á iSeries og slá inn LODRUN *OPT til að lesa inn gögnin. Frábært og einfalt kerfi.

Hringdu í okkur til að fá sendan hugbúnað til prufu !

RSF hugbúnaður

Tengjast heimasíðu BugBusters