Sérlausnir frá Ferli
Sérlausnir frá Ferli síðan 1991
IBM System i lausnir
Starfsmenn Ferlis hafa gríðarmikla reynslu í forritun fyrir IBM System i vélar og er þar mest forritað í RPG og CLP forritunarmálunum.
Með forritunarmálinu Visual RPG er forritað hins vegar í Windows umhverfi en talað við gögnin frá System i vélinni.
Því er leikur einn að skrifa forrit sem les gögn frá System i og setur t.d. í Excel eða yfir í hvaða skjámynd sem er.
Með nýjustu útgáfunni Visual RPG.net opnast svo nýr heimur fyrir System i lausnir.
Einnig höfum við tekið og tengt saman mörg af þeim kerfum sem við erum umboðsaðilar fyrir og búið til öflugar lausnir sem bæði keyra á vefnum og tengjast gögnum á System i vélinni.
Má þar nefna Strategi og Interform sérstaklega.
Windows lausnir
Allur okkar Windows hugbúnaður er skrifaður í Visual RPG.
Með Visual RPG leysum við öll mál hvort sem það eru sendingar gagna fram og til baka á milli gagnagrunna eða heildarlausnir á ákveðnum verkum.
Þjóðarsýn, Íbúasýn, Verksýn og fleiri kerfi frá Ferli eru öll skrifuð í Visual RPG.
Veflausnir
Með Strategi látum við vefinn tala við gögnin á System i.
Með Visual RPG látum við Windows netþjón birta gögn og gætu þau komið úr SQL eða beint frá System i.
Sem dæmi má nefna er söluvefur notaðra bíla hjá Brimborg, en allar myndir og gögn koma þar beint frá System i vélinni.
Vefþjónustur
Bæði til vefþjónustur sem tala beint við System i með Strategi eða tala við Windows netþjón með lausnum sem skrifaðar eru í Visual RPG.
Hjá okkur er hægt að skoða beint vefþjónusturnar á xml.ferli.is
Vefhönnun - Margmiðlunarlausnir
Sérhæfum okkur í vefhönnun og margmiðlunarlausnum:
- vefhönnun og heimasíðugerð
- margmiðlunarlausnir
- auglýsingar
Vefur Ferlis er alfarið hannaður og gerður innanhúss.
|