Þjóðarsýn
Þjóðskrárkerfi
Þjóðarsýn er heildarlausn fyrir fyrirtæki til að leita og fletta í þjóðskrá.
Þjóðarsýn keyrir á System i , SQL server, Windows netþjónum og á stökum PC-vélum.
Hvað er Þjóðarsýn
Drefingaskrá þjóðskrár er 300 stafa textastrengur. Þjóðarsýn er heildarlausn sem tekur þessa textaskrá og setur upp í gagnagrunn og leyfir margvíslegar fyrirspurnir á þjóðskrána.
Með Þjóðarsýn er hægt að leita í þjóðskrá, horfinnaskrá og utangarðsskrá eftir kennitölu, nafni og heimili. Einnig er hægt að skoða fjölskyldutengsl ef viðkomandi fyrirtæki hefur leyfi til þess frá Skrifstofu þjóðskrár. Símanúmer er hægt að stofna á kennitölu sem og netföng og annál, en það er nokkurs konar minnismiði á kennitölu.
Öll uppfærsla úr hreyfingarskránum og inn í þjóðskrárstofninn sjálfan er gerð frá tilbúnum forritum og eru þau mjög auðveld í notkun.
Þjóðarsýn er orðinn langútbreiddasti hugbúnaðarpakkinn frá Ferli.
Þjóðarsýn keyrir á System i, Windows netþjóni og á SQL server.
Hér má sjá ýmsar upplýsingar um viðkomandi aðila. Einnig er hægt að fara í fjölskylduupplýsingar, skrá inn símanúmer og skrá inn annál sem er eins konar dagbók fyrir viðkomandi.
|