Íbúasýn - handbók

Flutningstilkynning

Flutningstilkynning

Previous topic Next topic  

Flutningstilkynning

Previous topic Next topic  

Flutningstilkynning

Ef aðili tilkynning flutning, þá er hægt að komast í þessa mynd frá fjölskyldumyndinni eða m.þ.a. fara í valliðinn Eyðublöð.

Velja skal í upphafi hvort um sé að ræða skráningu lögheimilis eða skráningu aðseturs.

Setja skal inn kennitölu þess aðila sem tilkynnir flutninginn og þá birtist fjölskylda viðkomandi í flettimyndinni.

Hægt er að haka við og velja þá sem flytja, en einnig er hægt að hægri smella og bæta við nýjum aðilum.

Þegar sveitarfélag sem flutt er til er valið er hægt að smella á hnappinn "Ná í heimilisfang sem flutt er til",

en þá birtist gluggi sem sýnir öll götuheiti í því sveitarfélagi.

Ef valin er sú staðsetning sem aðilinn flytur til, þá kemur sjálfkrafa yfir lögheimiliskódinn á nýja staðnum.

Prenta skal svo út flutningstilkynninguna og láta viðkomandi skrifa undir.

Við útprentun sést skjalið fyrst á skjánum í forskoðun áður en það er prentað.

 

Flutningstilkynningin er svo send til Þjóðskrár.

Minnum á að nú er hægt að benda fólki á að skrá flutning beint á vefnum hjá Þjóðskrá (www.skra.is), en þá þarf að hafa rafrænt skilríki.

 

eydublod_flutningstilk