Sambúðartilkynning
Sambúðartilkynning
Ef aðilar vilja hefja sambúð, þá þarf að fylla út þetta eyðublað.
Farið er í þessa mynd frá valliðnum Eyðublöð í aðalvalmynd.
Fylla skal inn kennitölur aðilanna og þá sést hjúskaparkódi þeirra aftast.
Setja skal inn sveitarfélag þar sem þau munu búa og þegar það er valið er hægt að smella á hnappinn "Ná í heimilisfang sem flutt er til",
en þá birtist gluggi sem sýnir öll götuheiti í því sveitarfélagi.
Ef valin er sú staðsetning sem aðilinn flytur til, þá kemur sjálfkrafa yfir lögheimiliskódinn á nýja staðnum.
Við útprentun sést skjalið fyrst á skjánum í forskoðun áður en það er prentað.
Sambúðartilkynningin er svo send til Þjóðskrár.